Nemendaleikhús 2009-2010
Önnur sýning vetrarins var nýtt íslenskt verk, Bráðum hata ég þig, eftir Sigtrygg Magnason sem var frumsýnt 21. janúar í Smiðjunni, leikhúsi Listaháskólans við Sölvhólsgötu. Sýningum lauk 13. febrúar en uppselt var á allar sýningar.
Á bæ við Kolugljúfur í Víðidal hittast fjórar systur við jarðarför móður sinnar, sem beðið hafði dauðans í hálfan annan áratug. Halla hefur ekki haft samband í þrjú ár, Snæfríður hefur ekki talað við neinn jafn lengi. Steinunn þráir að vera snert og Anna vill komast burt. Halla kemur með gest, sem setur þögult sorglegt jafnvægið í uppnám. Kolugljúfur. Fallegur staður. Já. Fallegur staður.
Steinunn:
Á ákveðnu augnabliki breytist allt, allt hættir að vera eins og það var, hættir að vera eðlilegt, við höfum fellt grímuna.
Þegar ég hef fellt grímuna get ég ekki sett hana upp aftur, hún er ónýt, gagnslaus. Þegar ég hef staðið nakin fyrir framan þig þá er ég alltaf nakin í augum þínum, skiptir engu hversu mikið eða lítið ég klæði mig, hvernig ég klæði mig, alltaf nakin.
Alltaf nakin.
Og þegar þú hefur séð hvað ég er grimm þá geturðu aldrei gleymt því.
Þetta átti ekki að fara svona.
Bráðum hata ég þig er annað verkefni vetrarins en fyrsta sýning Nemendaleikhússins, Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, var sýnd fyrir fullu húsi í haust en uppselt var á allar sýningar.
Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir, búninga-og sviðsmyndahönnun er í höndum Axels Hallkels Jóhannessonar, Egill Ingibergsson sér um ljósahönnun og tæknistjórn og Brynja Björnsdóttir aðstoðar við leikmynd og tæknivinnu. Um hljóðmynd sér Högni Egilsson, tónsmíðanemi í tónlistardeild LHÍ.
Sýningaáætlun:
| miðvikudagur | 20. janúar | Lokaæfing | kl.20:00 |
| fimmtudagur | 21. janúar | Frumsýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 23. janúar | 2. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 27. janúar | 3. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| fimmtudagur | 28. janúar | 4. sýning | kl.20:00 |
| föstudagur | 29. janúar | 5. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 30. janúar | 6. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 3. febrúar | 7. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| fimmtudagur | 4. febrúar | 8. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| föstudagur | 5. febrúar | 9. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 6. febrúar | 10. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| miðvikudagur | 10. febrúar | 11. sýning | kl.20.00 -uppselt |
| fimmtudagur | 11. febrúar | 12. sýning | kl.20:00 -uppselt |
| föstudagur | 12. febrúar | 13. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| laugardagur | 13. febrúar | 14. sýning | kl.20:00 - uppselt |
| Bráðum hata ég þig | |||
| Bráðum hata ég þig |
Nemendaleikhúsið í vetur skipa:
Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson.
Miðasala fer fram á leiklist@lhi.is og í s: 895 6994. Einnig er miðasala sýningardaga í Nemendaleikhúsinu frá kl. 18.00 - 20.00.
Miðasala er einnig á midi.is
ATH! Sýningin er bönnuð innan 16 ára.
Á þessari slóð má sjá myndband af stemningunni baksviðs: http://www.youtube.com/watch?v=LuS_cNAzlzA
| Bráðum hata ég þig | |||
| Bráðum hata ég þig | |||
| Bráðum hata ég þig |
Fyrsta verkefni vetrarins var Eftirlitsmaðurinn eftir Nikolai Gogol í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar.
Sýningin fékk afar góðar undirtektir áhorfenda en uppselt var á allar sýningar.
Gogol hefði orðið 200 ára í ár en er svo sannarlega sígildur í bestu merkingu þess orðs. Hann er talinn til höfuðskálda Rússa og leikritið Eftirlitsmaðurinn er álitið þjóðargersemi þar í landi. Þekktasta skáldsaga hans er vafalaust Dauðar sálir.
Leikritið Eftirlitsmaðurinn gerist í lítill borg þar sem spillingin er allsráðandi. Ráðamenn mergsjúga þegnanna, samfélagið líður fyrir græðgi og lágar hvatir þeirra sem deila og drottna. Það verður uppi fótur og fit þegar fréttist, að mættur sé á svæðið eftirlitsmaður frá Pétursborg til að taka út stjórnsýsluna. Í ölluuppnáminu fara þeir mannavillt; auðnuleysingi og spilafíkill er tekinn fyrir þessa meiriháttar persónu úr hinum glæsta höfuðstað. Úr verður krassandi flétta þar sem allt er lagt í sölurnar til að bjarga eigin skinni.
Leikstjóri: Stefán Jónsson, leikmynd: Móeiður Helgadóttir, búningar og gerfi: Myrra Leifsdóttir, tónlist: Magga Stína nemandi í tónsmíðum í LHÍ og lýsing: Mika Haarinen skiptinema í LHÍ. Framkvæmda-og tæknistjórn: Egill Ingibergsson og aðstoð við leikmynd og tæknivinnu: Brynja Björnsdóttir.






