Samtímadans

Nám í samtímadansi er þriggja ára nám til 180 eininga. Nemendur ljúka að jafnaði 30 einingum á önn. Að námi loknu og tilskildum prófum og verkefnum hljóta nemendur BA gráðu í samtímadansi frá Leiklistar- og dansdeild.

Námið miðar að því að skila af sér vel þjálfuðum, skapandi og forvitnum danslistamönnum sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi huga og eru tilbúnir að takast á við starfið í fjölbreyttum og síbreytilegum heimi samtímadansins. Nemendur útskrifast með BA gráðu.

Á fyrsta ári er opnað fyrir breiðan skilning á hreyfingu og hugmyndum um hreyfimöguleika líkamans. Lögð er áhersla á að veita yfirsýn yfir þær kenningar, forsendur, hugtök og aðferðir sem eru grundvöllur áframhaldandi náms. Á haustönn eru línurnar lagðar fyrir komandi ár með fjölbreyttum tæknilegum grunni og stoðþjálfun auk þess sem skilningur í tækniþjálfun er tengdur við listrænar hugmyndir og spuna. Hugmyndaheimurinn er víkkaður og hvatt til sjálfstæðrar skoðanamyndunar um hlutverk dansins í samtímanum. Á vorönn er byrjað er að víkka út tjáningarmöguleika dansarans og einnig er samband tónlistar og dans skoðað í gegnum mismunandi líkamlegar nálgunarleiðir.

Á öðru ári er haldið áfram að byggja upp og dýpka danstæknilega færni nemandans í listrænu samhengi og aukin áhersla er lögð á sköpunarkraft hans. Tjáningarmöguleikum dansarans fjölgar og þanþol hans er aukið. Á haustönn er unnið að því að tengja saman leiðir leiklistar og dans en á vorönn er áhersla á danssmíði og nýmiðla. Nemendur fá þjálfun í að beita helstu greiningartækjum fagsins og nýta þann skilning í framsetningu verkefna. Unnið er að frekari samþættingu fræða, tækni og listrænnar vinnu.

Þriðja árið er ár sjálfstæðis og úrvinnslu. Hér takast nemendur á við verkefni sem reyna á færni þeirra í skapandi og fræðilegum vinnubrögðum, skilning og yfirsýn. Á haustönn velur nemandinn sér starfsþjálfun eða skiptinám sem styður við þróun nemandans innan hans eigin áhugasviðs. Á vorönn fær nemandinn aukið sjálfstæði og ábyrgð í listrænu ferli og aukin áhersla er lögð á gagnrýna sýn hans á eigin vinnubrögð og aðferðir. Í lok ársins skal nemandinn vera fær um að takast á hendur rannsóknarvinnu er snýr að starfi dansarans. Nemandinn fær innsýn í atvinnuumhverfi dansarans með því að: öðlast sýningareynslu í nemendaleikhúsi, vinna með atvinnufólki í faginu, vinna fullbúna sýningu, bera ábyrgð á listrænu ferli og vinna úr opinberri gagnrýni auk þess sem þeir huga að öðrum þáttum er snerta rekstur atvinnudanshóps.

Skipulag náms
Viðmið um bakkalársgráðu í dansi

Fagstjóri: Sveinbjörg Þórhallsdóttir