Leikarabraut

Nám á leikarabraut er samfellt nám á 3. og 4. háskólastigi sem lýkur með meistaragráðu í leiklist. Námið er tvískipt: þriggja ára nám, 180 einingar, á bakkalárstigi sem lýkur með BA gráðu, og eins árs (12 mánaða) nám, 90 einingar, á meistarastigi sem lýkur með MA gráðu. Nemendur, sem óska eftir að hætta náminu að fenginni BA gráðu verða að sækja um það sérstaklega.

Fyrstu tvö árin í leikaranámi fær nemandinn góða undirstöðu í tæknigreinum. Kennd er raddbeiting, söngur, líkamsþjálfun og leiktúlkun, auk leiklistarsögu. Kenningar sem stuðst er við í leiktúlkun taka mið af fræðum Konstantíns Stanislavski. Sameiginleg námskeið allra brauta deildarinnar eru mikilvægur þáttur námsins á þessu tímabili.

Á þriðja ári er leiktúlkunarkennsla í brennidepli ásamt með fræðinámskeiðum. Lögð er áhersla á efla skilning nemandans á ólíkum aðferðum leikhússins. Einstaklingsverkefni, samsettar aðferðir (’devised’), kvikmyndavinna og dansleikhús eru meðal þeirra verkefna sem boðið er upp á. Þriðja árinu lýkur með uppsetningu á leikverki.

Tilgangur meistaranáms er að dýpka skilning og þekkingu nemandans á viðfangsefnum leikarans og þannig undirbúa hann fyrir störf sem atvinnumaður í leiklist. Með fjölbreyttri og markvissri þjálfun fær hann innsýn í vinnuaðferðir samtímaleikhússins og þekkingu á því starfsumhverfi er bíður hans að námi loknu. Námið fer fram í hóp- og einkatímum. Námið er þannig skipulagt að því er skipt í fjórar samfelldar lotur. Í hverri lotu er tekið fyrir ákveðið svið í þjálfun leikarans, s.s. raddbeiting og textavinna, kvikmyndir og leikhús, samsettar aðferðir, og fullbúin uppsetning. Námið er í nánu samstarfi við atvinnuleikhús og aðrar listastofnanir.

Skipulag náms
Viðmið um bakkalársgráðu í leikaranámi

Prófessor og fagstjóri: Stefán Jónsson