Fræði og framkvæmd
Nám í fræði og framkvæmd er þriggja ára nám til 180 eininga. Nemendur ljúka að jafnaði 30 einingum á önn. Að námi loknu og tilskildum prófum og verkefnum hljóta nemendur BA gráðu í leiklist.
Í náminu, sem er jöfnum höndum fræðilegt og verklegt er lögð áhersla á leiklist í sem víðustum skilningi og er námið hugsað sem vettvangur fyrir bæði fræðilegar og listrænar rannsóknir á leiklist. Námið snýst um sögu, eðli, hlutverk og mörk leiklistarinnar, tungumál hennar og snertifleti við aðrar listgreinar. Fræði og framkvæmd býr nemendur undir störf eða framhaldsnám í leiklist með því að auka sérþekkingu þeirra og hvetja til frumsköpunar. Námsbrautinni er ætlað að renna stoðum undir gagnrýna sýn nemandans á listgreinina, umhverfi sitt og eigin verk. Námið er ekki ætlað þeim sem vilja læra til leikara.
Á fyrsta ári er lögð megináhersla á að byggja upp fræðilegan grunn. Á haustmisseri er leitast við að veita inngang inn í námið, helstu aðferðir og kenningar. Grundvallarspurningum um form, hefð og aðferðum velt upp og nemendum kynntar helstu kenningar, bæði sem snerta leiklist og list leikarans, aðrar tegundir af sviðslistum og eins helstu kenningar í hugmyndasögu seinni hluta tuttugustu aldar og samtímans. Vormisseri beinir sjónum að einstökum þáttum sviðslistanna, svo sem texta og líkama og hvernig þessir þættir vinna saman og er víxlverkun þeirra rannsökuð, bæði með fræðilegum/sögulegum athugunum og verklegum æfingum. Á öðru ári er eykst áhersla á skapandi vinnu út frá þeim kenningum og aðferðum sem kenndar hafa verið á 1. ári. Þriðja árið hefst á einnar annar námsdvöl erlendis, en á vormisseri gefst aukið tækifæri til sérhæfingar.
Nemendur útskrifast með B.A.gráðu. Námið veitir engin starfsréttindi, sambærilega leikaranámi, nemendur útskrifast ekki sem leikstjórar eða dramatúrgar eða slíkt, en námið veitir góðan grunn til frekara náms í þeim fögum, sem og góðan undirbúning til að kljást við leikslistarformið á ýms-um sviðum mannlífsins. Þegar litið er til skóla erlendis sem kenna svipað nám, þá opnar það möguleika á að vinna m.a. innan leikhúss eða fjölmiðla - sem leikstjórar, höfundar, dramatúrgar, að framleiðslu leikhúss og sjónvarps, sem þáttastjórnendur, að menningar- og viðburðastjórnun, sem kennarar, gagnrýnendur, blaðamenn, í útvarpi, útgáfu, við rannsóknir og greinaskrif, svo fátt eitt sé nefnt.
Náminu lýkur með lokaverkefni og ritgerð.
Skipulag náms
Viðmið um bakkalársgráðu í fræði og framkvæmd
Fagstjóri: Magnús Þór Þorbergsson

