Leiklistardeild
Í leiklistardeild er boðið nám á þremur brautum: leikarabraut, samtímadans og fræði og framkvæmd.
Leikarabraut er fjögurra ára nám, 240 einingar til B.F.A. gráðu með aðaláherslu á þjálfun leikarans. Fræði og framkvæmd er þriggja ára nám, 180 einingar til B.A. gráðu í leiklist þar sem er jöfnum höndum fræðilegt og verklegt nám og lögð áhersla á leiklist í sem víðustu skilningi. Samtímadans er þriggja ára nám, 180 einingar til B.A. gráðu. Nemendur eru teknir inn á allar námsbrautir annað hvert ár.
Nám í leiklistardeild miðar að því að nemendur öðlist þekkingu, færni og víðsýni á sínu sviði, þeir fái þjálfun í að útfæra hugmyndir í frjóum farvegi og að taka frumkvæði sem sjálfstæðir, skapandi listamenn. Samsetning námsins er mismunandi eftir brautum en almennt er lögð áhersla á að nemendur öðlist staðgóða þekkingu á helstu þáttum leik- og danslistarinnar og fái einbeitta þjálfun í þeim greinum sem tækni þeirra byggir á. Nemendur takast á við verkefni sín ýmist í hópum eða sem einstaklingar.
Deildarforseti: Ragnheiður Skúladóttir
Lektor í leiklistarfræðum: Magnús Þór Þorbergsson
Fagstjórar
Leikaranám: Stefán Jónsson
Samtímadans Karen María Jónsdóttir
Fræði og framkvæmd: Magnús Þór Þorbergsson
Tæknistjóri: Egill Ingibergsson
Deildarfulltrúi: Esther Judit Steinsson
Þjónustufulltrúi: Albert Eiríksson


